Frí heimsending yfir 15.000 kr
Einstaklega vandaðar bambusbuxur frá danska merkinu Plaisir.
Þú átt eftir að elska þessar kósý buxur frá Plaisir - því bambusinn er alveg einstaklega mjúkur og þægilegur!
Bambus er undra efni því það er sterílt svo að bakteríur eru ekki langlífar í efninu og þar af leiðandi festist svitalykt ekki í þeim.
Efnið er líka ofnæmisprófað svo að það er mjög gott fyrir þær sem hafa viðkvæma húð. Góð öndun og eru þær frábærar bæði í hita og kulda.
Góð teygja er í mittinu og buxurnar ná hátt upp með vösum á hliðinni og beinum skálmum.
Skámalengdin mælist sirka 80 cm.
Þessar má líka nota sem náttbuxur.