ATH! vegna fjölda pantana getur orðið seinkun á afhendingu
Hér er á ferð virkilega vönduð úlpa frá ZIZZI sem er alveg á pari við úlpur frá helstu útivistamerkjum Íslands.
Það má segja að þessi úlpa hafi verið hönnuð fyrir íslenskar aðstæður!
Hlý og góð með regn- og vatnshelda skel yfir sér svo hún þolir rigningu jafnt sem snjóstorm.
Hetta með loði sem þú getur tekið af. Einnig er stroff neðst á ermunum sem gefur úlpunni betri einangrun.
Rennilás sem þú getur rennt upp að neðan líka, auk rennilása á hliðunum sem víkka úlpuna að neðan.
Tveir góðir renndir vasar og auka renndur vasi að innan.
Síddin mælist sirka 110 cm.
Efnið í úlpunni er úr Sorona vegan dúnn og polyester skel - virkilega hlý og andar líka vel.