ATH! vegna fjölda pantana getur orðið seinkun á afhendingu

Leit

Blue Jude Jakkafatabuxur

Vandaðar jakkafatabuxur frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.

Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.

Þessar eru í bláum tóni með herringbone mynstri og í stíl við Jude Jakkann og vestið.

Efnið er úr 70% Polyester 20% Wool 10% Viscose.

Hér er virkilega vandað til verka með smáatriðum á borð við stillanlegum streng, smeigar fyrir belti og fóðri að innan svo buxurnar eru líka þægilegar.

Vasar á hliðinni og rassvasar að aftan.

Buxurnar eru með beinum skálmum og koma þær í nokkrum skálmalengdum og mælist lengdin eftir innanmáli skálmarinnar.

Short = 74 cm

Regular = 79 cm

Long =  83 cm