ATH! vegna fjölda pantana getur orðið seinkun á afhendingu
Vandaður Blazer jakki frá Skopes, en Skopes er breskt merki sem sérhæfir sig í gæða jakkafötum.
Þar er mikið lagt upp með góð snið og vönduð efni ásamt öðruvísi stíl sem minnir svolítið á Peaky blinders þættina.
Jude Blazer jakkinn er dökkblár með tweed mynstri.
Fóðrið inní jakkanum er í skemmtilegu mynstri og gefur jakkanum mikinn karakter.
Efnið í jakkanum er góð blanda úr 60% Polyester 20% Wool 20% Viscose .
Jakkinn lokast með tveimur tölum og svo eru 4 vasar að framan og tveir vasar að innan.
ATH! hér er aðeins um jakkann að ræða en vestið fæst einnig í Stout.
Jakkinn kemur bæði í Regular og Long lengd.
Ef þú ert ekki viss með stærðina þá er velkomið að koma til okkar í Holtagarða og við aðstoðum þig.