Frí heimsending yfir 15.000 kr
Einstaklega fallegur og sparilegur hvítur blúndukjóll.
Kjóllinn er með V-hálsmáli, stuttum ermum, tekinn saman í mittinu með teygju að aftan og hnepptur að framan með klauf.
Síddin á kjólnum mælist um 129 cm
Tveggjalaga efni, 100% polyester siffon sem gefur ekki eftir og svo undirkjóll úr léttara teygjanlegu efni.
Þessi kjóll er tilvalinn fyrir fermingu, skírn, útskrift eða önnur tilefni - og svo er hann líka svo sætur við gallajakka á góðum degi í sumar!