Frí heimsending yfir 15.000 kr
Ótrúlega fallega ljós peach litaður mótaður brjóstahaldari frá undirfatalínu Zizzi - Devoted.
Hér er hugsað um smáatriðin þar sem brjóstahaldarinn er með mesh efni yfir skálunum sem eru með útsaumuðum blómum.
Brjóstahaldarinn er með spöngum og mótuðum skálum sem gefa góðan stuðning og lyfta upp barminum ásamt því að gera fallega rúnnaða mótun.
Stillanlegir góðir hlýrar og þreföld krækja að aftan.
Efnið er 86% polyamide, 14% Elastane.
* ATH! Skálastærðirnar eru frekar litlar. Við mælum alltaf með því að taka skálastærð fyrir ofan það sem þú ert vön að taka þegar kemur að mótuðum brjóstahöldurum.